Misnotkun á aðstöðu?

Einn fréttastjórinn á 24 Stundum Björg Eva Erlendsdóttir fer mikinn í leiðara blaðsins í morgun.

Skrifar um "ofurbótaþega", "glæframenn nýfrjálshyggjunnar" og einkavæðingu.

Inn í greinina læðir hún óskildu máli og skrifar:"Þeim sem nú tala fyrir erlendum lánum til tafarlausra stóriðjuframkvæmda verður vonandi ekki heldur trúað".

Björg Eva hlýtur að geta fjallað málefnalega um atburði síðustu daga án þess að blanda persónulegri andúð á stóriðju saman við. 

 

Stóriðjan kemur málinu ekkert við, nema þá sem hluti af lausn þess vanda sem blasir við.

Lántaka til uppbyggingu virkjana vegna stóriðju eru meðal bestu fjárfestinga sem hægt er að fara í.

Stóriðjan borgar lánin og til verða mörg vel launuð störf.  Milljarðar á milljarða ofan koma inn í landið.  Raunverulegir  peningar.

 

 

 


Er slæmt að fá erlend fyrirtæki til að fjárfesta á Íslandi?

 Áratugum saman hefur verið reynt að fá erlenda fjárfesta til að koma með peninga til landsins með misjöfnum árangri.  

Að undanförnu hafa störiðjufyrirtæki beint sjónum sínum að landinu með það fyrir augum að fjárfesta hér til lengri tíma. Við útvegum aðstöðu, mannskap og rafmagn en stóriðjufyrirtækin borga brúsann.

Raforkuöflun er fjármögnuð með lánum sem greidd eru  með gjöldum frá stóriðjunni sjálfri.

Búrfellsvirkjun(1969), sem  greidd var upp á 25 árum og er í fullum rekstri, væri ekki til ef ekki hefði verið reist álver í Straumsvík.  Í leiðinni var hægt að tryggja almennum notanda mun öruggari aðgang að rafmagni á hagstæðu verði. 

Miðað við upplýsingar frá einum þekktasta andstæðingi stóriðjunnar er hlutur íslendinga  35% af heildarveltu fyrirtækjanna. 

Ef farið er enn neðar, til að taka af allan vafa, og miðað við að 30% af heildarveltu komi í hlut Íslendinga þá getur dæmi litið svona út:  

Álver sem framleiðir 400.000.- tonn af áli á ári x 3000 $ per tonn = 1.200.000.000.- $Eitt þúsund og tvöhundruð milljón dollarar og 30% af því er 360.000.000.- þrjúhundruð og sextíu milljón dollarar.

Í dag er dollarinn 90 ísl kr.  og eru 30% þá 32.400.000.000.- ísl kr.

Þrjátíu og tvö þúsund og fjögurhundruð milljónir ísl kr. á ári. 

Samningar um raforkukaup losna að 40 árum liðnum og komandi kynslóðir eiga þá gríðarlegt magn af raforku til ráðstöfunar. Eiga þá raforkuver sem ekki verða byggð til nema kaupendur séu til staðar að raforkunni.


Seinheppnir kjósendur

Það er rannsóknarefni hve illa kjósendum tekst að velja forustufólk til að stjórna landinu.

Hvað eftir annað lendir fólkið í minnihluta sem hefur allar lausnir á vandamál líðandi stundar.

Þeim mun léttar virðist að sjá lausnirnar því lengra sem síðan er að setið var við stjórnarborðið eða eru Geir og Ingibjörg kannski að "meika það"?. 


mbl.is Ekki rétt að tala um kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

vangaveltur

Höfundur

Tryggvi L. Skjaldarson
Tryggvi L. Skjaldarson

Er íþrótta-,frétta- og þjóðmálafíkill, genatískur Valsari og stuðningsmaður Manchester United með veiðidellu í ofanálag.

Sept. 2008
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband